Umhverfisstefna Skóla Ísaks Jónssonar
Tilgangurinn með umhverfisstefnu Ísaksskóla er að bæta umhverfið og umhverfisvitundina.
Markmið:
- að nemendur læri að lifa í sátt við umhverfi sitt og taka ákvarðanir sem eru samfélaginu og náttúrunni til heilla.
- að bæta umhverfisvitund nemenda og starfsmanna skólans.
- að draga úr hvers kyns sóun verðmæta með nýtni og því að endurnota og endurvinna.
- að vinna gegn hvers konar mengun og umhverfisspjöllum.
- að styðja alþjóðlega umhverfisvernd og vekja nemendur til umhugsunar um sameiginlega ábyrgð
Til að koma þessu í framkvæmd þurfum við að:
- efla markvissa umhverfismennt í skólanum.
- safna upplýsingum um stöðu umhverfismála í skólanum, meta hvaða verkefni hafa forgang og gera áætlun um aðgerðir.
- upplýsa aðra um umhverfisstefnu okkar og fá þá í lið með okkur Umhverfisteymi skólans vinnur að framkvæmd og framgangi umhverfisstefnu skólans.
Umhverfisráð Ísaksskóla
Í umhverfisráði sitja eftirtaldir aðilar: Skólastjóri, húsvörður, Björg Þórsdóttir og Hildur Karen Jónsdóttir.
Hlutverk umhverfisráðs
- Í meginatriðum er hlutverk umhverfisráðs að gera vinnuáætlun til að bæta umhverfisvitund nemenda og starfsmanna.
- Hjá okkur er/u
- öll áhöld og umbúðir í matnum margnota
- öll drykkjarílát eru margnota
- allar flöskur og dósir flokkaðar og settar í endurvinnslutunnu
- allur lífrænn úrgangur flokkaður og settur í gám til moltugerðar
- pappírstunnur; blá og græn við skólann
- pappír og pappi flokkaður og settur í gáma
- endurvinnslukassi fyrir rafhlöður staðsettur á skrifstofu og í heitu kompu
- ál og málmar flokkaðir og settir í endurvinnslutunnu
- allt plast flokkað og sett í endurvinnslutunnu
- merkingar í öllum vistarverum fyrir ofan flokkunartunnur
- hreinlætisvörur vistvænar
- útikennsla vikulega allan veturinn í 9 ára bekk í Heiðmörk og í Laugardalnum
- eftirlit og endurmat umhverfisteymisins tvisvar á ári
- Grænn dagur að vori þar sem nemendur, starfsmenn og foreldrar vinna saman að því að hreinsa og fegra skólalóðina
Við stefnum að því að:
- efla markvissa umhverfismennt í skólanum
- safna upplýsingum um stöðu umhverfismála í skólanum, meta hvaða verkefni hafa forgang og gera áætlun um aðgerðir
- upplýsa aðra um umhverfisstefnu okkar og fá þá í lið með okkur
- ganga vel um, raða skóm, hengja upp fatnað, nýta ritföng og önnur skólagögn vel
- minnka úrgang -endurvinna m.a. úr pappír, efni, kertum o.fl.
- gefa gömlum hlutum nýtt líf (gera upp gamla hluti)
- græða umhverfið
- stunda meiri útikennslu
- halda skólalóðinni enn hreinni og gróðursetja
- minnka mengun -hvetja fólk til að hafa bílana ekki í lausagangi