• Heim
  • Kennarar
  • Mentor
  • Vefpóstur
  • Vefstjórn
email
  • FRÉTTIR
  • SKÓLINN
    • Um skólann
      • Starfsáætlun
      • Skólagjöld
      • Skólaskjól
      • Skólareglur
      • Skólaráð
        • Reglugerð
      • Stjórn skólans
        • Samþykktir/skipulagsskrá
      • Umhverfisstefna
      • Persónuverndarstefna
      • Heilsugæsla
      • Velkomin í Ísaksskóla | bæklingur
      • Vegvísir starfsfólks | bæklingur
    • Skólasamningur skólaárið 2020-2021
    • Skóladagatal 2020-21
    • Beiðni um tímabundna undanþágu frá skólasókn
    • Sumarskóli SÍJ
    • Tómstundaframboð
    • Skipurit
    • Stefna og einkunnarorð
    • Ráð og teymi
      • Jafnréttisráð
      • Áfallaráð
      • Nemendaverndarráð
      • Innra mats teymi
      • Teymi gegn einelti
    • Mat á starfi
  • STARFSFÓLK
  • MYNDASÖFN
  • FORELDRAR
    • Foreldravefurinn
    • Bekkjarfulltrúar
    • Foreldrafélag Ísaksskóla
      • Stjórn Foreldrafélags SÍJ
      • Foreldrafélag: Lög
      • Foreldrafélag: Viðburðir
  • ÁÆTLANIR
    • Heildaráætlun um sérkennslu
    • Áfallaáætlun
    • Aðgerðaráætlun gegn einelti nemenda
    • Aðgerðaráætlun gegn einelti starfsfólks
    • Starfsáætlun
    • Starfsáætlun frístundar
    • Jafnréttisáætlun
    • Umbótaáætlun
    • Eldvarna og rýmingaráætlun
    • Móttökuáætlun f. nemendur af erlendum uppruna
    • Móttökuáætlun f. nýtt starfsfólk
    • Umhverfisáætlun
    • Óveður / Öskufall
    • Svínaflensa
    • Símenntunaráætlun
    • Læsisstefna Skóla Ísaks Jónssonar
  • SKÓLANÁMSKRÁ
    • Skólanámskrá SÍJ
    • Námskrá 5 ára deildar
    • Námsmat SÍJ
    • Sérkennsla
  • UMSÓKN

Umferðin á morgnana – Leysum þetta saman

15. nóvember 2020
by vala@isaksskoli.is
Comments are off

Kæru foreldrar/forráðamenn

Nú er mikilvægt að við tökum höndum saman og losum um umferðarhnútinn sem myndast hjá skólanum á morgnana. Það er mikilvægt að við notum rampinn sem er fyrir framan aðaldyr skólans aðeins til að hleypa börnunum okkar út. Þar á hvorki að leggja né stoppa til að bíða með börnunum í bílnum. Ég bið ykkur vinsamlega að leggja í stæði á öðrum stöðum og ganga með börnunum ykkar stuttan spöl ef þið viljið fylgja þeim að skólalóðinni. Ýmsir möguleikar eru til að leggja bílum í nágrenni við skólann eins og við Menntavísindasvið (Kennaraháskólann), kirkju Óháðasafnaðarins, í lögleg stæði í nærliggjandi götum og sunnan við Miklubraut (þá er farið yfir á gönguljósunum). Næstu morgna munu Matti mjúki eða Þröstur þrjúþúsund standa við rampinn til að minna okkur öll á þetta.

Hér fyrir neðan má sjá afstöðumynd af skólanum og nágrenni og ökuleiðum að skólanum. Þyngstu teppurnar myndast ef ekið er niður Stakkahlíðina og þar tekin u-beygja inn í rampinn. Allir sem koma þá leið ættu að velja Lönguhlíðina til suðurs og beygja síðan inn Skaftahlíðina og koma þar inn í rampinn. Umferð frá Miklubraut þarf að hleypa bílum sem koma Skaftahlíðina inn í röðina. Þegar búið er að hleypa börnunum út þarf að aka áfram í átt að gamla Sjómannaskólanum til þess að láta umferðina renna ljúflega (ekki taka u-beygju úr rampinum). Sama á við um þá sem velja að fara inn Bólstaðarhlíðina og leggja þar til að fylgja börnunum inn á skólalóðina, að taka hægri beygju á leiðinni út í umferðina aftur í Stakkahlíðinni (í átt að gamla Sjómannaskólanum).

Þetta verður skemmtilegt og áhugavert verkefni fyrir okkur öll og við leysum það saman.

Fyrir hönd foreldrafélagsins og starfsmanna,
Sigríður Anna

 

NÝJUSTU FRÉTTIRNAR

  • Þorragleði 22. janúar 2021
  • Þorrabyrjun og þemadagar 20. janúar 2021
  • Álfadans í upphafi árs 17. janúar 2021
  • Gleðilegt ár! / Happy new year! 5. janúar 2021
  • Jóla- og áramótakveðja frá skólanum 28. desember 2020

NÆSTU VIÐBURÐIR

  1. Foreldradagur

    10. febrúar
  2. Bolludagur

    15. febrúar
  3. Sprengidagur

    16. febrúar
  4. Öskudagur

    17. febrúar
  5. Vetrarfrí

    22. febrúar - 23. febrúar

Skoða alla Viðburðir

Skóli Ísaks Jónssonar

Bólstaðarhlíð 20
105 Reykjavík

Sími: 553 2590
Netfang: isaksskoli@isaksskoli.is

Opnunartími skrifstofu er alla
skóladaga milli kl 8:00 - 16:00

 

Hafa samband

 
Skóli Ísaks Jónssonar
Uppsetning og forritun: Tæknimiðlun ehf