Í Ísaksskóla er starfrækt skólaskjól og skiptist það í tvær mismunandi deildir.
Annars vegar Sólbrekku, sem er leikskóladeild 5 ára barna og hins vegar Sunnuhlíð sem er frístund 6, 7, 8 og 9 ára nemenda skólans.
Sólbrekka og Sunnuhlíð, opið 7:30 – 17:15 ( lokar 16:15 föstudaga )
Smelltu hér ef þú vilt sækja um breytingu á vistunartíma fyrir barnið þitt.
Verð í frístund Ísaksskóla | ||
---|---|---|
1-4 tímar á viku | 5.600kr | á mánuði |
5-8 tímar á viku | 7.200kr | á mánuði |
9-12 tímar á viku | 10.800kr | á mánuði |
13-16 tímar á viku | 14.400kr | á mánuði |
17-20+ tímar á viku | 18.000kr | á mánuði |
Athugið að ofangreind verðskrá á ekki við um 5 ára börn úr Reykjavík því þau falla undir þjónustusamning við Reykjavíkurborg. Skólinn áskilur sér rétt til að breyta gjaldskránni með mánaðar fyrirvara.
Skólinn hefur gert samninga við Reykjavíkurborg og flest nágrannasveitarfélög vegna reksturs frístundar. Reykvískir foreldrar geta sótt um systkinaafslátt ef nemandi í frístund á yngra systkini sem er í frístund eða í leikskóla. Sótt er um systkinaafslátt í skólasamningi fyrir hvert skólaár.
Starfsfólk skólaskjólsins leiðbeinir og aðstoðar börnin í leik og starfi utan kennslustunda. Lögð er áhersla á að hvetja börnin til leikprýði og samvinnu. Í skólaskjólinu eru einnig haldnar söngstundir og ýmislegt sem virkjar börnin til leiks í því sem þau hafa lært í skólanum.
Starfsfólk skólaskjólanna er sem hér segir:
Sólbrekka Móeiður kennir 5 ára börnum skólans tónmennt, auk þess sem hún starfar í Sólbrekku, skólaskjóli 5 ára barna. Hún hefur starfað við skólann frá því um haustið 2014.
Móeiður Kristjánsdóttir
Tónmennt 5 ára / Sólbrekka
Persónuupplýsingar
Sunnuhlíð