Skólagjöld 2023 – 2024
Skólagjöld fyrir veturinn 2023-2024 eru:
kr. 270.000,- fyrir 6-9 ára nemendur eða 27.000,- á mánuði í 10 mánuði.
kr. 250.000,- fyrir 5 ára börn utan Reykjavíkur eða 25.000,- á mánuði í 10 mánuði.
Systkinaafsláttur í Ísaksskóla er 25% vegna barns nr. 2 í skólanum og 50% vegna barns nr. 3 í skólanum.
Upplýsingar um skólaskjól og verðskrá þess má finna með því að smella hér.
Athugið að ef nemandi hættir í skólanum á skólaárinu skal samt greiða full skólagjöld fyrir allt árið.
Skólaárið er frá ágúst til júní.
Foreldrar/forráðamenn 5 ára barna úr Reykjavík greiða skv. þjónustusamningi sem skólinn hefur gert við Reykjavíkurborg en þau eru frá janúar 2024 þessi:
kr. 39.161,- á mánuði í alls 11 mánuði (matur, gæsla að 8 tímum innifalin). Gjaldskráin fylgir gjaldskrá Reykjavíkurborgar og getur tekið breytingum á skólaárinu og skiptist upphæðin í námsgjald 22.411 og fæðisgjald 16.750. Uppsagnarfrestur er einn mánuður hið minnsta og skal uppsögn miðast við 1. hvers mánaðar. Athugið að gjaldskrá þessi hækkaði frá og með 1. janúar 2024.
Hádegismatur og ávaxtastund
Ávaxtastund er daglega rétt fyrir kl. 10:00. Nemendur koma með ávöxt eða grænmeti að heiman. Maturinn í hádeginu er valfrjáls og verðið er 16.750 kr. á mánuði í 10 mánuði eða 980 kr. hver máltíð. Þeir nemendur sem eru í frístundinni koma með hollt og gott eftirmiðdagsnesti.
Innritunargjald fyrir skólaárið 2024-2025 er kr. 30.000,-
– innritunargjald er ekki endurgreitt, og kemur ekki til frádráttar á skólagjöldum.