Sparinesti og fleira mikilvægt

Kæru foreldrar/forráðamenn

Á morgun, miðvikudaginn 3. júní, ætlum við að gera okkur dagamun.

Nemendur mega koma með sparinesti og röradrykk að heiman í litlum bakpoka eða tösku.

Ekki má koma með sælgæti eða gosdrykki.

Allir þurfa að vera klæddir eftir veðri.

Með bestu kveðjum,
starfsfólk Ísaksskóla