Samræmd próf 2015 / Söngur á sal fellur niður á föstudag

Kæru foreldrar/forráðamenn.

Á morgun (fimmtudag) og á föstudag þreyta nemendur 9 ára bekkjar samræmd próf. Vinsamlega gangið hljóðlega um og notið eingöngu neðri ganginn til kl. 12:00 báða dagana. Vegna prófanna verður ekki söngur á sal á föstudagsmorgun. Einnig fellur sundið niður á morgun, fimmtudag, hjá 9 ára, 7 ára BVK og 7 ára EBH.

Báða dagana verða 8 ára bekkirnir og 7 ára SÁS í ferðum úr húsi á meðan á prófunum stendur.

Með skólakveðjum,

Sigríður Anna Guðjónsdóttir 
Skóli Ísaks Jónssonar