Minnum á kirkjuferðina á morgun

Lagt verður af stað frá skólanum kl. 8:30 stundvíslega. 

Börnin eiga að vera klædd eftir veðri því lagt er af stað frá skólanum og gengið til kirkju fljótlega eftir að hringt er inn. 5 ára bekkirnir fara fyrstir og síðan koll af kolli. Kirkjubekkir eru fráteknir fyrir hvern bekk skólans.

Aðstandendur eru velkomnir í kirkjuna en taka sér sæti aftan við börnin í kirkjunni og á hliðarbekkjum.

Helga Ægisdóttir