Handþvottur

Hér fyrir neðan, gefur að líta upptöku af handþvottalagi sem Björg Þórsdóttir tónmenntakennari skólans samdi.

Handþvottur – nótur | sækja skrá
Handþvottur – texti með hljómum | sækja skrá

Handþvottur
Lag og ljóð: Björg Þórsdóttir

Vatn og sápa er allt sem þarf.
Ég nuddaði saman höndunum og skíturinn hvarf.
Mót þrálátum sýklum og bakteríum
sem vilja koma heim með fólki úr fríum.
Nuddast lófar, handabök og fingra á milli,
þumallinn knúsaður af mikilli snilli.
Þú getur svo endað á að nota spritt,
en það kemur ekki í staðinn fyrir allt hitt!