Skólaslit á morgun, þriðjudaginn 7. júní kl 13:30

Kæru foreldrar/forráðamenn

Síðasti kennsludagur er á morgun, þriðjudaginn 7. júní. Þessi dagur er hefðbundinn skóladagur hjá nemendum fram að skólaslitum. Skólaárinu lýkur með tröppusöng sem hefst kl. 13:30 og foreldrar eru hjartanlega velkomnir. Að tröppusöng loknum fylgja börnin kennara sínum inn í skólastofu og kveðja þar.

Engin gæsla er í skólanum eftir tröppusönginn, hvorki í Sólbrekku né Sunnuhlíð.

Sumarskólinn hefst síðan fimmtudaginn 9. júní.

Kærar þakkir fyrir skólaárið 2015-2016 og gleðilegt sumar,
starfsfólk Ísaksskóla