Nordplus samstarf – Nordic Youth Health
Árin 2012 – 2014 tók Ísaksskóli þátt í samnorrænu þróunarverkefni á vegum Nordplus.
Verkefnið bar heitið Nordic Youth Health og snerist um að efla heilbrigði og hollar lífsvenjur skólabarna. Nemendur í 7 ára bekkjum skólans tóku þátt í verkefninu ásamt börnum frá 6 öðrum löndum. Þau eru Danmörk, Noregur, Finnland, Eistland, Lettland og Litháen.
Á heimasíðu verkefnisins http:/nordicyouthhealth.com/ er að finna nánari upplýsingar um verkefnið.
Undirsíðu með Nordplus verkefni Ísaksskóla er að finna hér: http://nordicyouthhealth.com/author/Iceland/
Nordplusteymi Ísaksskóla skipuðu þau:
Ebba Áslaug Kristjánsdóttir, Jóhann Hilmar Hreiðarsson og Sóley Ósk Elídóttir