Hleð Viðburðir

« Allt Viðburðir

  • This event has passed.

Kirkjuferð á aðventu.

6. desember 2017

Kirkjuferð er miðvikudaginn 6. desember.

Sr. María Ágústsdóttir tekur á móti nemendum, starfsfólki og foreldrum kl. 9:00 í Háteigskirkju. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 8:30 stundvíslega. Börnin eiga að vera klædd eftir veðri því lagt er af stað frá skólanum og gengið til kirkju fljótlega eftir að hringt er inn. 5 ára bekkirnir fara fyrstir og síðan koll af kolli.

Kirkjubekkir eru fráteknir fyrir hvern bekk skólans. Aðstandendur eru velkomnir í kirkjuna en taka sér sæti aftan við börnin í kirkjunni og á hliðarbekkjum.

Þeir foreldrar/forráðamenn sem vilja ekki að börnin þeirra fari í kirkjuna geta haft samband við Láru á skrifstofunni eða umsjónarkennarann. Allir verða komnir til baka í skólann um kl. 10.

Upplýsingar

Dagsetn:
6. desember 2017