Velkomin á heimilisfræðivef 8 ára bekkjar.
Í 8 ára bekk læra börnin almenna umgengni og frágang í eldhúsinu. Þau fá þjálfun í því að nota eldhúsáhöld, fara eftir uppskriftum og mæla rétt og nákvæmlega. Þekkja helstu næringarefni og hlutverk þeirra í líkamanum, ásamt því að fræðast um kornmeti, grænmeti, ávexti og gagnsemi gersveppa.
Námsbók: Hollt og gott 3
Höfundar: Hjördís Jónsdóttir og Halldóra Birna Eggertsdóttir
Útgefandi: Námsgagnastofnun.
1 kennslustund
Kynning. Lærðum um hættur sem leynast í eldhúsi og útbjuggum brauð með banana.
2. kennslustund
Lærðum að hálfur merkið helmingurinn af einhverju ákveðnu. Fengum þjálfun í að nota beittan hníf og enduðum tímann á því að gera ávaxtasalat með jarðaberjadýfu. | sækja
3. kennslustund
Lærðum um næringarefnin í fæðunni, æfðum okkur í að nota mæliskeiðar og gerðum heitt kakó. | sækja
4. kennslustund
Kynntumst gagnsemi gersveppa við brauðgerð. Hnoðuðum og bökuðum fléttubrauð. | sækja
5. kennslustund
Bóklegur heimilisfræðitími.
6. kennslustund
Þjálfuðumst í að skera niður grænmeti og bjuggum til matarmikið grænmetissalat. | sækja
7. kennslustund
Bökuðum súkkulaðismákökur. | sækja
8. kennslustund
Gerðum verkefni um matarinnkaupin, kornið, kornflokkinn og korntegundirnar. Enduðum tímann á því að elda hafragraut. | sækja
9. kennslustund
Gerðum verkefni um mjólkurframleiðslu og enduðum tímann á því að gera mjólkurhristing með berjum. | sækja
10. kennslustund
Töluðum um hvernig á að meðhöndla hrátt kjöt og gerðum kjötkúlur. | sækja
11. kennslustund
Bökuðum Sólgrjónabrauð. | sækja
12. kennslustund
Bóklegur heimilisfræðitími.
13. kennslustund
Þrifum skólatöskurnar okkar og kennslustofuna
14. kennslustund
Gerðum brakandi gott morgunkorn | sækja
15. kennslustund
Gerðum beyglupitsu | sækja
16. kennslustund
Allir bjuggu til sína eigin uppskrift af ávaxtadrykk
17. kennslustund
Bökuðum eplakökur | sækja
Valdís Lilja Andrésdóttir,
heimilisfræðikennari