Velkomin á heimilisfræðivef 7 ára bekkjar.
Í 7 ára bekk læra börnin almenna umgengni og frágang í eldhúsinu. Fá þjálfun í því að nota einföld eldhúsáhöld og öðlast grunnþekkingu í geymslu matvæla. Þau læra um mikilvægi vatns fyrir líkamann ásamt því að fræðast um mjólkurafurðir, grænmeti, ávexti og gagnsemi gersveppa.
Námsbók: Hollt og gott 2
Höfundar: Hjördís Jónsdóttir og Halldóra Birna Eggertsdóttir
Útgefandi: Námsgagnastofnun.
1 kennslustund:
Kynning. Lærðum um hættur sem leynast í eldhúsi og útbjuggum brauð með banana.
2. kennslustund
Fengum þjálfun í að nota beittan hníf og gerðum Sólskinsdrykk. | sækja
3. kennslustund
Ræddum um hvernig öruggt eldhús liti út, lærðum að nota mæliskeiðar og gerðum heitt kakó. | sækja
4. kennslustund
Bóklegur heimilisfræðitími.
5. kennslustund
Kynntumst gagnsemi gersvepps og bökuðum brauðkringlur. | sækja
6. kennslustund
Mjólkurdrykkur blandaður. | sækja
7. kennslustund
Bökuðum Trallakökur. | sækja
8. kennslustund
Gerðum verkefni um mjólkurframleiðslu og blönduðum sælkeraskyr. | sækja
9. kennslustund
Gerðum beyglubrauð. | sækja
10. kennslustund
Gerðum Drumba að hætti kokksins. | sækja
11. kennslustund
Bóklegur heimilisfræðitími.
12. kennslustund
Þrifum skólatöskurnar okkar og kennslustofuna
13. kennslustund
Gerðum pylsur í felum | sækja
14. kennslustund
Gerðum gulrótarsalat | sækja
15. kennslustund
Gerðum skyrdrykk | sækja
16. kennslustund
Allir bjuggu til sína eigin uppskrift af ávaxtadrykk
17. kennslustund
Bökuðum súkkulaðismákökur | sækja
Valdís Lilja Andrésdóttir,
heimilisfræðikennari