Skóli Ísaks Jónssonar
Sjálfseignarstofnun
Aðgerðaráætlun gegn einelti nemenda
Hvað er einelti?
Einelti er endurtekið ofbeldi, líkamlegt eða andlegt, sem stýrt er af einstaklingi eða hópi og beinist að einstaklingi sem ekki tekst að verja sig. Einelti getur birst í ýmsum myndum þótt algengast sé að flokka það í tvo flokka, andlegt og líkamlegt.
Einelti hefur margvísilegar birtingarmyndir. Hér eru dæmi um nokkrar:
- Líkamlegt: barsmíðar, spörk, hrindingar eða skemmdarverk
- Andlegt: þegar barnið er þvingað til að gera eitthvað sem stríðir algjörlega gegn réttlætiskennd þess og sjálfsvirðingu
- Munnlegt: uppnefni, niðrandi athugasemdir og endurtekin stríðni
- Skriflegt: tölvuskeyti, sms–skilaboð, bloggsíðuskrif, krot og bréfasendingar
- Óbeint: baktal, útskúfun eða útilokun úr félagahópi
- Efnislegt: eigum barnsins stolið eða þær eyðilagðar
Einelti er ofbeldi sem getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér bæði fyrir þolanda og geranda. Andlegt ofbeldi hefur oft verri afleiðingar í för með sér en líkamlegt. Einelti hefur iðulega alvarleg áhrif á líðan, félagsþroska einstaklinga og nám.
EineltisteymiÍ Ísaksskóla starfar eineltisteymi sem vinnur að sameiginlegri lausn og fyrirbyggjandi aðgerðum í eineltismálum. Í eineltisteyminu starfa:
Herdís Þórsteinsdóttir (herdis@isaksskoli.is)
Lilja Björk Jónsdóttir (liljabjork@isaksskoli.is)
Matthías Guðmundsson (matthiasg@isaksskoli.is)
Vinnuferli eineltismála
- Grunur um einelti er tilkynnt til umsjónarkennara.
- Umsjónarkennari leitar eftir frekari upplýsingum frá starfsfólki skólans, foreldrum og nemendum.
- Umsjónarkennari fer með málið til eineltisteymis sem metur vandamálið. Teymið vinnur með umsjónarkennara að upprætingu eineltisins.
- Ef þurfa þykir fer málið áfram til nemendaverndarráðs með samþykki foreldra / forráðamanna.
Forvarnir (til að koma í veg fyrir einelti)
Mikilvægt er að nemendur séu alin upp við jákvæða athygli heima og í skólanum.
Í Ísaksskóla er stefnt að því að nemendur læri að setja sig í spor annarra, sýna umburðarlyndi, tillitssemi og samkennd.
Mikilvægt er að nemendur beri virðingu hver fyrir öðrum og taki afstöðu gegn einelti.
Áherslur skólans og almennar fyrirbyggjandi aðgerðir:
- Áhersla á jákvæðan skólabrag og stafsanda.
- Hvetja nemendur til að bera virðingu hver fyrir öðrum, sýna tillitssemi, samkennd og taka afstöðu geng einelti.
- Öflugt samstarf heimila og skóla frá byrjun skólagöngu.
- Reglulegir bekkjarfundir þar sem rætt er um samskipti innan hópsins og við aðra.
- Fræðsla um einelti fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk.
- Heimsóknir, t.d. frá lögreglu, sálfræðingi eða öðrum sem koma að eineltismálum eða hafa jafnvel orðið fyrir einelti
- Opin umræða um einelti í bekkjardeildum, t.d. með lestri á sögum og umræðum um einelti, hegðun, samskipti og líðan
- Skipulagðir leikir og leikjastöðvar í frímínútum.
- Virk gæsla í vinnuhléum, á göngum, í matsal, á útisvæði og í íþróttahúsi
- Skipulag kennslu taki mið af þjálfun nemenda í samvinnu og samstarfi.
- Áhersla á góða bekkjarstjórnun, reglusemi og öguð vinnubrögð.
- Kenna barninu að koma sér útúr aðstæðum þ.e. ganga í burtu og ná í fullorðinn einstakling. Regluleg endurskoðun á eineltisáætlun Ísaksskóla.
- Regluleg endurskoðun á eineltisáætlun Ísaksskóla.
Endurskoðað, apríl 2015.