Aðgerðaráætlun gegn áreiti og einelti starfsmanna Skóla Ísaks Jónssonar.
_______________________________________________________________________
Starfsfólk Skóla Ísaks Jónssonar líður ekki einelti, áreitni né ofbeldi gegn öðru starfsfólki. Skólastjóri/trúnaðarmaður ber ábyrgð á að upplýsa og fræða starfsfólk sitt um orsakir og afleiðingar eineltis, áreitni og vanlíðunar og þær reglur og viðbrögð sem við eiga.
Allt starfsfólk á rétt á því að komið sé fram við það af virðingu og kurteisi. Það á að vera öruggt á sínum vinnustað og ekki þola áreitni, einelti eða ofbeldi af neinu tagi.
Vinnustaður þar sem áreitni og einelti fær þrifist er óheilbrigður og mikilvægt að sporna við því. Einelti getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir þau fyrirtæki og stofnanir þar sem það kemur fyrir, auk þeirra sem þar starfa. Allir starfsmenn hafa þær skyldur að fyrirbyggja einelti. Þeim ber einnig að reyna að leysa ágreining og vandamál sem koma upp í samskiptum á vinnu-stöðum.
Vanlíðan fólks á vinnustað hamlar góðum árangri og vanlíðanin skilar sér inn á heimili þess. Veikindafrí og starfsmannavelta aukast, sem hefur í för með sér aukinn kostnað fyrir vinnu-staðinn. Er því öllum í hag að skapa aðstæður á vinnustað þar sem öllum líður vel og mikilvægt að eiga opin samskipti og hafa skýrar reglur. Vellíðan og heilbrigði starfsmanna eru lykill að góðu og heilbrigðu samfélagi.
„Einelti er ámælisverð eða síendurtekin ótilhlýðileg háttsemi, þ.e. athöfn eða hegðun sem er til þess fallin að niðurlægja, gera lítið úr, móðga, særa, mismuna eða ógna og valda vanlíðan hjá þeim sem hún beinist að. Kynferðisleg áreitni og annað andlegt eða líkamlegt ofbeldi fellur hér undir.
Einelti og ótilhlýðileg háttsemi eru brot á starfsskyldum. Dæmi um slíka hegðun eru:
- Misnotkun valds/ofstjórnun.
- Óréttmæt starfstengd gagnrýni.
- Útilokun, einangrun, skeytingarleysi og þöggun.
- Baktal og niðrandi ummæli.
- Ofsóknir og hótanir í garð starfsmanns.
- Meðvitað komið í veg fyrir að starfsmaður geti sinnt verkefnum sínum.
Viðbragðsáætlun.
Öll mál skal tilkynna til skólastjóra eða eineltisteymis sem kemur þeim í viðeigandi farveg. Öll mál sem berast verða könnuð. Mál er varða kynferðislegt ofbeldi má tilkynna hvort heldur sem er munnlega eða skriflega.
Mál af þessu tagi geta verið flókin og oft þarf sérfróða eða óháða aðila til að meta aðstæður á vinnustað og leiðbeina um úrlausnir. Hins vegar er alltaf mikilvægt að tilkynna þau næsta yfirmanni.
- Öll mál skulu könnuð og bæði þarf að ræða við þolendur og gerendur.
- Yfirmanni ber skylda til að bregðast fljótt við öllum kvörtunum um áreitni, einelti eða ofbeldi. Vinna þarf mál hratt og flýta allri meðferð eins og hægt er.
- Gefa skal þolendum og gerendum tækifæri til að tjá sig um málið áður en gripið er til ráðstafana.
- Tryggja þarf að hlutleysis sé gætt við meðhöndlun viðkvæmra mála.
- Ef atvikið varðar alvarlegt ofbeldi skal það kært til lögreglu en þó alltaf með samþykki þolanda.
- Leita ber sátta eftir föngum og reyna að leysa vandann innan skólans áður en gripið er til annarra úrræða.
- Ef ekki er unnt að vinna á vandanum innan skólans mun óháður aðili verða fenginn til að meta aðstæður og hlutast til um úrlausn.
- Leiðbeina skal starfsmanni um sálfræðiþjónustu ef hann þarf á því að halda en stéttar-félög niðurgreiða slíka þjónustu.
- Alvarleg og endurtekin áreitni og einelti geta varðað áminningu eða brottvikningu úr starfi skv. lögum nr. 70/1996 um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna.
Verklagsreglur gegn kynbundinni, kynferðislegri áreitni og einelti.
Hvað getur þú gert ef þú verður fyrir kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni eða
einelti?
Verið getur að viðkomandi gerandi sé ómeðvitaður um að þú kunnir ekki að meta þá hegðun/famkomu sem hann/hún viðhefur gagnvart þér. Þess vegna skaltu gera viðkomandi grein fyrir því að þér líki ekki þessi hegðun/framkoma og munir ekki þola hana. Mikilvægt er að ná sáttum með því að biðjast afsökunar og fyrirgefa.
Ef þú treystir þér ekki til að tala ein/einn við viðkomandi getur þú haft einhvern með þér eða sent bréf eða tölvupóst en mundu þá að geyma afrit. Gættu þess að kenna ekki sjálfri/sjálfum þér um ástandið. Ef viðkomandi lætur sér ekki segjast skalt þú leita aðstoðar þeirra sem þú treystir.
Þú getur einnig:
• leitað til skólastjóra, trúnaðarmanns og/eða eineltisteymis
• leitað til stéttarfélags þíns
• skráð hjá þér nákvæma lýsingu á því sem gerist hverju sinni
Gættu þess að reyna ekki að standa ein/einn í stríði við samstarfsmann/yfirmann þinn.
Ekki draga of lengi að gera eitthvað í málinu – það lagast ekki af sjálfu sér!
Ef um er að ræða gróft brot, s.s. nauðgunartilraun, kúgun eða aðrar hótanir skaltu
strax hafa samband við lögreglu, skólastjóra og trúnaðarmenn.
Gerð er sú krafa til skólastjóra eða trúnaðarmanna sem gert er viðvart um
kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða einelti að þeir í samráði við
aðra yfirmenn stjórnsýslunnar bindi enda á ástandið.
Þolandi skal engan skaða bera af ráðstöfunum sem gripið er til í því skyni. Alvarleg
og endurtekin áreitni varðar áminningu eða brottrekstur úr starfi.
Ráð til yfirmanna:
Hvað ber þér að gera?
Skólastjóra ber skylda til að taka rétt á málum þegar þau koma upp og leita aðstoðar t.d. hjá fagfólki. Allar kvartanir vegna kynferðislegrar áreitni, kynbundinnar áreitni og eineltis skulu rannsakaðar/kannaðar og starfsfólk stutt eftir bestu getu.
Málsmeðferð skal flýtt sem frekast er unnt.
• taktu strax og ákveðið á málinu
• ræddu við aðila málsins, kynntu þér báðar hliðar
• kynntu gerandanum afleiðingar af gerðum hans, láttu hann taka ábyrgð
• hvettu gerandann til þess að leita sér aðstoðar við vanda sínum
• þurfi að gera ráðstafanir s.s. að færa til starfsmenn sem í hlut eiga, færðu
þá gerandann en ekki þolandann
Við meðferð kvartana sem berast vegna kynferðislegrar áreitni, kynbundinnar áreitni
eða eineltis skal gætt fyllsta trúnaðar til að vernda hagsmuni allra aðila. Það gildir um
öll gögn sem tengjast málinu.
Rangar ásakanir
Komi upp tilvik þar sem starfsmaður er ranglega sakaður um kynferðislega áreitni,
kynbundna áreitni eða einelti getur það varðað þeim sem setti fram ásökun,
áminningu. Þess skal gætt að fylgja settum málsmeðferðarreglum stjórnsýslulaga um
áminningu
Gæta þarf þess að nýjum starfsmönnum sé kynnt „Áætlun gegn áreiti og einelti starfsmanna Skóla Ísaks Jónssonar,, vandlega af skólastóra við ráðningu.
Yfirfarið april, 2015.