Vorhátíð frestað

Kæru foreldrar/forráðamenn og börn.

Við ætlum að fresta Vorhátíð foreldrafélagsins og sleppa Græna deginum þetta árið.

Spáin er köld og mikil forföll barna vegna íþróttamóta og annarra viðburða út um allan bæ.

Í staðinn mun foreldrafélagið halda Vorhátíð á skólatíma á föstudaginn kemur þann 15. maí. Þennan dag verður leikjadagur í skólanum og að honum loknum tekur hátíðin við með pylsupartýi, andlitsmálun og skemmtilegheitum. 

Með vorkveðjum,
stjórn foreldrafélagsins og starfsfólk Ísaksskóla