Brot á reglum um notkun stöðureita í Reykjavík og gjaldtaka

Kæru foreldrar/forráðamenn og starfsmenn

Í morgun var stöðumælavörður að störfum við bílastæði skólans . Hann hugðist sekta alla eigendur þeirra bíla sem lagt hafði verið upp á gangstéttir, gangstíga og umferðaeyjar við skólann.  Hann sleppti því að sekta en bað okkur um að láta alla foreldra/forráðamenn og starfsmenn vita að hann yrði á ferðinni næstu daga.

Með góðum kveðjum,
Sigríður Anna Guðjónsdóttir